Við Stórulauga rennur Reykjadalsá sem er margrómað bæði sem urriða og laxveiðiá. Áin lætur ekki mikið yfir sér en mikið magn urriða og lax veiðist í þessari gullfallegu perlu Reykjadals.
Hestaferðir
Við bjóðum ekki uppá hefðbundnar hestaferðir, heldur bjóðum við hestafólki upp á mat, gistingu og alla okkar þjónustu við að hjálpa til með að gera ykkar hestferð eftirminnilega og ánægjulega.
Staðsetning
Bærinn Stórulaugar er við Laugar, í Reykjardal. Bærinn stendur við veg 846 aðeins 800m norður af framhaldsskólanum á Laugum(keyrt að skólanum síðan beygt til vinstri).
Stórulaugar
Velkomin á vef gistiheimilisins Stórulaugar.
Á Stórulaugum er gisting í nýuppgerðu og glæsilegu steinhúsi, en bærinn er um 1 km frá framhaldsskólanum á Laugum og því vel staðsett á milli Akureyrar og Mývatns. Fljótlegt er að skreppa í báðar áttir en á Akureyri má m.a. njóta dagsins á glæsilegum golfvelli Akureyringa (61 km) eða skreppa í hvalaskoðunarferð til Húsavíkur (40 km) og svo eru töfrar Mývatns nánast handan við hornið (30 km). Svo er að sjálfsögðu verslun og sundlaug að Laugum í aðeins um 1 km fjarlægð.
Herbergin á Stórulaugum eru björt og rúmgóð; Sjö þeirra með sér baðherbergi (tvö 3ja og fimm 2ja manna) en auk þess eru 4 herbergi með handlaugum (eitt 3ja manna, eitt eins manns og tvö 2ja manna).
Frá bænum er alveg einstakt útsýni og á verönd fyrir framan húsið er stór heitur pottur.
Bærinn stendur við veg nr. 846 (keyrt að framhaldsskólanum en síðan er beygt til vinstri).